Enska og Golf

Enskuskóli Erlu Ara hefur allt frá 1994 boðið upp á námsferðir í  enskuskóla til Englands. Í september 2005 var í fyrsta skipti boðið upp á vikuferð sem samanstóð af enskunámi og golfi. Sumarið 2010 verður boðið upp á Ensku og golf ferð þann 20 júní.  Möguleiki er á að dvelja í viku (ensku og golf) og einnig er hægt að vera í viku til viðbótar sem eingöngu yrði enskunám og hægt að skreppa í golf gegn greiðslu.

Enskunám í Kent School of English

Staður: Broadstairs er vinalegur 25 þúsund íbúa sjávarbær og sumarleyfisstaður á suðausturströnd Englands.  Broadstairs er skammt frá Canterbury, Ermasunds-göngunum og White Cliffs of Dover (tæplega tveggja tíma aksturslengd frá London). Í jaðri bæjarins er North Foreland golfvöllurinn þar sem golf verður spilað. www.northforeland.co.uk

Tími: 20.-27. júní.

Skólinn: Kent School of English sem er viðurkenndur af British Council, hefur starfað síðan árið 1972. Skólinn leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytta, fyrsta flokks kennslu sérmenntaðra kennara og sérhæfir sig í að taka á móti hópum nemenda frá hinum ýmsu löndum. www.kentschoolofenglish.com

Kennsla: Fer fram í 10 manna hópum sem raðað er í eftir getu. Rík áhersla er lögð á að þjálfa hlustun og tal. Allt námsefni er innifalið. Kennsla fer fram í skólanum á morgnana frá 9-12.

Golf: Fimm eftirmiðdaga verður spilað á North Foreland golfvellinum sem er 18 holu golfvöllur bæði með forgjafarvelli í fullri lengd og 18 holu velli með stuttum brautum.

Klukkutíma golfkennsla er í boði hjá enskum golfkennara og eftir það gengur Kristjana Aradóttir með hringinn og leiðbeinir þeim sem þess óska. Fimmta eftirmiðdaginn verður haldið golfmót.

 Afþreying og skemmtun: Boðið upp á afþreyingu á vegum skólans eitt kvöld en restina sjáum við um sjálf. Einnig verður boðið upp á dagsferð  á laugardeginum.

Gisting og uppihald: Gist verður á Bed and Breakfast sem staðsettur er í sömu götu og skólinn. Mælst er með því að vinkonur deili með sér herbergi sökum skorts á einsmanns herbergjum.

Verð: Heildarverð er um 197.617 þúsund krónur (miðað við gengi pundsins 29.12. 2009; sterlingspundið 202 krónur)

Innifalið í verði: Flug, ferðir til og frá flugvelli í Englandi, enskunámskeiðið, golfspilið og golfkennslan svo og gisting með  morgunverði og allar ferðir og uppákomur á vegum skólans svo og þjónusta hópstjóra  sem er með hópnum allan tímann.

Greiðsla:

bullet Staðfestingagjald (óafturkræft) 20 þúsund krónur greiðist fyrir 1. mars  inn á  bankareikning: 0545 26 212125  kt 650697 2519, Uppsprettan ehf.
bulletFlugmiði sem er 40.257 með sköttum, greiðist fyrir 1. apríl á aðalskrifstofu Iceland Express (biðjið um Helgu Einarsdóttur)
bullet Eftirstöðvar  680 pund greiðast fyrir 1. maí  inn á gjaldeyrisreikning: 0545 38 250226 kt. 650697 2519 
bullet Kennitala beggja reikninga er 650697 2519. 

 

Fundur: Með Erlu Aradóttur  verður haldinn 19. maí kl. 20:00 í kennslustofu Erlu Ara

Nánari upplýsingar : Hikið ekki við að hringja í Erlu Aradóttur í síma 8917576 til þess að fá nánari upplýsingar.