Enskunám í Englandi

Enskuskóli Erlu Ara er í nánu samstarfi við tvo enskuskóla í Englandi.  Kent School of English sem er í Broadstairs á suðausturströnd Englands og English Language Centre sem staðsettur er í York.  Þessir skólar eru viðurkenndir af The British Council og eru meðlimir í Arels.

Sífellt fleiri halda utan til þess að stunda enskunám í þessum skólum. Á sumrin er aðallega um hópa að ræða en á öðrum tímum sækja þangað einstaklingar sem stunda þá nám frá 2 vikum og allt upp í 10 vikur.  Fólk sem þarf að undirbúa sig fyrir krefjandi nám eða störf.  Skólarnir bjóða upp á framúrskarandi enskukennslu í hópum og einkatímum sem sniðnir eru að þörfum nemandans. Hægt er að velja um að dvelja hjá fjölskyldum, á hótelum eða að leigja sér íbúð. 

Einnig er í boði að útbúa námsferð fyrir einstaklinga sem samanstendur af enskukennslu í Kent School of English og golfkennslu hjá enskum golfkennara í North Foreland Golf Club.

Enska í The English Language Centre, York 2009 (sjá nánar) Ekki verður boðið upp á ferð til York í sumar en hægt að fá aðstoð ef sérhópar eða einstaklingar óska eftir því

Enska í Kent School of English, Broadstairs 2010 (sjá nánar)