The English Language Centre er alþjóðlegur skóli sem staðsettur er í hjarta York. York hefur meir en 2000 ára sögu og hvar sem litið er má sjá sögufrægar byggingar. Í miðborginni þar sem skólinn er staðsettur er að finna fallegar steinalagðar göngugötur með skemmtilegum matsölustöðum, krám og verslunum. Skólinn leggur metnað sinn í að bjóða upp á afbragðs kennslu fyrir einstaklinga sem ýmist þurfa að bæta enskukunnáttu sína vegna atvinnu sinnar eða vegna undirbúnings fyrir háskólapróf. The English Langauge Centre er viðurkenndur af The British Council og er meðlimur í Arels, samtökum enskuskóla í Bretlandi. www.york.co.uk
